Útskriftarverkefni til BA prófs í Grafískri hönnun úr Listaháskóla Íslands.
Innan kerfis tóntákna (e. music symbols) mætist bæði hljóðræn- og myndræn upplifun. Þessi samsuða er það sem gerir þau að kjarna verkefnisins Falin tákn. Kerfið er einstakt því það er nær eingöngu hannað af tónskáldum. Það var því áhugavert að bregða táknum kerfisins undir grafíska smásjá enda hafa þau aldrei verið meðhöndluð út frá sviði hönnunar. Táknin voru endurhönnuð með það í huga að formin yrðu lýsandi fyrir hlutverk sitt og að saman yrðu þau myndræn heild. Verkefnið er atrenna til endurlífgunar lítið þekktra tákna sem standa á bak við langflesta tónlist en í mínum huga eru táknin lýsingarorð sem gefa tilfinningu tónlistar til kynna.
Leiðbeinendur:
Birna Geirfinnsdóttir
Lóa Auðunsdóttir
Ármann Agnarsson
Verkefni unnið Í Listaháskóla Íslands. Verkefnið var endurmörkun fyrir sýningarrýmið Harbinger og bókabúðina Books in the Back.
Hönnun á kápu og uppsetning á bókinni Á heimsenda.
Hönnun á útliti Druslugöngunnar 2018. Í því fólst hönnun á varning, límmiðum og veggspjöldum.
Uppsetning og hönnun á Haustblaði Röskvu 2018.
Verkefni unnið í LUCA School of Arts. Verkefnið var að endurhanna þekkta belgíska skáldsögu.